Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 22. maí 2018 12:00
Magnús Már Einarsson
Mane: Fleiri mörk á leiðinni
Mane er klár í úrslitaleikinn á laugardaginn.
Mane er klár í úrslitaleikinn á laugardaginn.
Mynd: Getty Images
„Ég held að það séu fleiri mörk á leiðinni," sagði Sadio Mane, leikmaður Liverpool, brosandi í samtali við fjölmiðla í gær fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Real Madrid á laugardaginn.

Mane skoraði í báðum leikjunum gegn Roma í undanúrslitunum en hann er kominn með níu mörk á tímabilinu.

Mohamed Salah og Roberto Firmino, félagar Mane í framlínunni, eru með tíu mörk hvor í Meistaradeildinni.

„Sem framherji þá viltu skora í hverjum leik til að hjálpa liðinu þínu."

„Núna eigum við einn mikilvægan leik eftir og af hverju ættum við ekki að reyna að gera okkar besta til að skora og hjálpa liðinu að vinna bikarinn."

Athugasemdir
banner
banner