Nú stendur yfir leikur KA og Keflavíkur í Pepsi-deild karla en staðan er markalaus þegar fyrri hálfleik er að ljúka í þessum skrifuðu orðum. Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá Akureyri.
Cristian Martínez, markvörður KA, fékk höfuðhögg í upphitun og getur því ekki tekið þátt í leiknum.
Cristian Martínez, markvörður KA, fékk höfuðhögg í upphitun og getur því ekki tekið þátt í leiknum.
„Cristian Martinez liggur hér eftir óvígur í upphitun KA manna. Ásgeir Sigurgeirs á fyrirgjöf fyrir markið og Daníel Hafsteinsson skallar boltann í höfuðið á Martinez sem var að horfa annað," skrifaði Viktor Andréson, fréttaritari Fótbolta.net, í textalýsingu frá leiknum.
Aron Elí Gíslason varamarkvörður byrjaði því leikinn í markinu en þessi tvítugi strákur er að spila sinn fyrsta meistaraflokksleik á Íslandsmóti.
KA missti svo Callum Williams meiddan af velli eftir 25 mínútur en hér má sjá beina textalýsingu frá leiknum.
Athugasemdir