Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 22. maí 2018 11:30
Magnús Már Einarsson
Shameeka Fishley í ÍBV (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Shameeka Fishley hefur gengið til liðs við ÍBV en félagaskipti hennar gengu í gegn í dag.

Félagaskiptaglugginn lokaði í síðustu viku en ÍBV hafði skilað öllum pappírum inn áður en glugginn lokaði. Nú er búið að staðfesta skiptin.

Hin 24 ára gamla Fishley kemur frá Verona á Ítalíu þar sem hún hefur verið í lykilhlutverki.

Fishley spilar í fremstu stöðunum á vellinum en hún þekkir til í íslenska boltanum eftir að hafa verið í lykilhlutverki hjá Sindra í 1. deildinni í fyrra.

Fishley, sem er frá Englandi, skoraði þá sex mörk í sautján leikjum í 1. deildinni.

Draumaliðsdeild Toyota
Fishley er mætt í Draumaliðsdeild Toyota og hægt verður að kaupa hana í sitt lið fyrir næstu umferð.
Smelltu hér til að taka þátt í Draumaliðsleiknum!
Athugasemdir
banner
banner