Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 22. maí 2018 20:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Vill ekki að Can fái að spila úrslitaleikinn
Mynd: Getty Images
John Aldridge, fyrrum leikmaður Liverpool, segir að Emre Can verðskuldi ekki sæti í leikmannahópi Liverpool fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Liverpool leikur við Real Madrid í úrslitaleiknum í Kænugarði næstkomandi laugardag.

Can hefur ekkert spilað síðan í mars vegna bakmeiðsla, en Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hefur talað um það að hann gæti spilað í úrslitaleiknum.

Aldridge vill hins vegar ekki sjá Can í leikmannahópnum þar sem hann telur að hjarta Þjóðverjans sé ekki í Liverpool. Can verður samningslaus í sumar og miklar líkur eru á því að hann sé á leið til Ítalíumeistara Juventus.

„Hann hefur verið hluti af ferðalaginu í úrslitaleikinn en hann verðskuldar ekki að spila í úrslitaleiknum. Af hverju vill hann fara? Peningar. Er ítalska deildin betri? Nei. Juventus er stórt félag, en Liverpool hefur unnið Meistaradeildina oftar," skrifar Aldridge í pistli fyrir Liverpool Echo.
Athugasemdir
banner
banner