Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fim 22. júní 2017 21:25
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
1. deild kvenna: Þróttur R. og Selfoss með sigra
Eva Þóra skoraði tvö mörk í kvöld
Eva Þóra skoraði tvö mörk í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Tveir leikir fóru fram í 1. deild kvenna í kvöld.

Þróttur R. fékk ÍA í heimsókn. Eftir markalausan og jafnan fyrri hálfleik voru það heimakonur sem voru sterkari í þeim síðari.

Sierra Marie Lelii kom Þrótti yfir eftir klukkutíma leik eftir stoðsendingu frá Michaelu Mansfield. Eva Þóra Hartmannsdóttir kom inná sem varamaður eftir klukkustundarleik og hún átti eftir að láta að sér kveða. Hún tvöfaldaði forystuna á 78. mínútu eftir laglegan samleik við Sierru markaskorara og gulltryggði svo öruggan sigur á 86. mínútu þegar hún skoraði eftir sendingu Michaelu.

Þróttur R. heldur því öðru sæti sínu með sigrinum en ÍA er í 7. sæti.

Í hinum leik kvöldsins mættust Selfoss og Keflavík á Selfossi. Kristrún Rut Antonsdóttir kom Selfyssingum yfir strax á 2. mínútu og Karitas Tómasdóttir kom Selfossi í 2-0 á 18. mínútu.

Ekki urðu mörkin fleiri og 2-0 sigur Selfoss staðreynd. Með sigrinum komst Selfoss upp fyrir Keflavík í 3. sæti deildarinnar en Keflavík er í því fjórða.

Þróttur R. 3 - 0 ÍA
1-0 Sierra Marie Lelii ('60)
2-0 Eva Þóra Hartmannsdóttir ('78)
3-0 Eva Þóra Hartmannsdóttir ('87)

Selfoss 2 - 0 Keflavík
1-0 Kristrún Rut Antonsdóttir ('2)
2-0 Karitas Tómasdóttir ('18)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner