Arnar Þór Valsson, þjálfari ÍR í Inkasso-deild karla, var auðvitað svekktur eftir 2-0 tap liðsins gegn HK í Kórnum í kvöld. Hann var afar ósáttur með spilamennsku sinna manna.
Lestu um leikinn: HK 2 - 0 ÍR
Ásgeir Marteinsson og Bjarni Gunnarsson sáu til þess að HK myndi landa öllum stigunum en HK-ingar höfðu betur í baráttu alls staðar á vellinum að sögn Arnars.
„Sanngjörn úrslit. Við vorum undir í allri baráttu og ekki á tánum og bara sanngjarn sigur hjá HK," sagði Addó við Fótbolta.net.
„Það var fyrst og fremst að mæta þeim í baráttu og sjá hvað við getum gert út frá því. Ef þú mætir ekki HK í baráttu þá skiptir engu ef þú gerir ekkert annað."
„Ég er alveg sammála því. Ef þú vinnur ekki annan boltann þá ertu alltaf undir og á eftir. Þá áttu ekkert skilið."
Sergine Modou Fall kom inná þegar tuttugu mínútur voru eftir og var afar öflugur í sóknarleik ÍR.
„Sergine gerði það. Automatiskt gáfu þeir aðeins eftir. Við áttum fullt af færum í lokin en kannski ekkert dauðafæri. Hann var sprækur en þetta var sanngjarn sigur."
„Við töpuðum í fyrsta skipti með tveggja marka mun í síðasta leik gegn Keflavík og nú er það aftur það sama hérna. Baráttan þarf að vera í lagi."
Styrmir Erlendsson kom inná sem varamaður hjá ÍR en fékk beint rautt undir lok leiks.
„Ég sé ekki nákvæmlega hvað gerist en mér sýndist hann dangla löppinni í liggjandi HK mann. Dómarinn dæmir þetta og ég ætla ekki að reyna að dæma þetta," sagði hann í lokin.
Athugasemdir