Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fim 22. júní 2017 09:00
Magnús Már Einarsson
Diego Costa vill fara aftur til Atletico Madrid
Vill fara aftur til Spánar.
Vill fara aftur til Spánar.
Mynd: Getty Images
Diego Costa hefur tilkynnt Chelsea að hann vilji ganga aftur í raðir Atletico Madrid. Sky greinir frá þessu í dag.

Costa kom til Chelsea frá Atletico á 32 milljónir punda fyrir þremur árum síðan.

Hinn 28 ára gamli Costa er ekki í áætlunum Antonio Conte hjá Chelsea fyrir næsta tímabil og líklegt er að hann fari frá enska félaginu.

Costa vill sjálfur fara aftur til Atletico Madrid en þau félagaskipti geta ekki gengið í gegn fyrr en í janúar.

Atletico er í félagaskiptabanni í sumar og því gæti Costa þurft að bíða í rúmlega hálft ár eftir að fá að fara aftur til spænska félagsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner