Liverpool gekk frá félagaskiptum við Mohamed Salah í kvöld en kaupverðið er um 34 milljónir punda.
Er félagaskiptin voru tilkynnt, var einnig tilkynnt að Salah fengi númerið 11 hjá Liverpool en Roberto Firmino hefur leikið með það númer.
Salah lék í treyju númer 11 hjá Roma og virkaði það vel og vildi hann halda því númeri hjá Liverpool. Firmino var tilbúinn til þess að láta af hendi númerið sitt og fær hann númerið 9 í staðinn.
Ákveðin bölvun hefur verið á númerinu 9 hjá Liverpool síðan í janúar 2011. Síðasti leikmaður sem naut velgengni hjá Liverpool í þessu númeri var enginn annar en Fernando Torres.
Síðan hafa leikmenn eins og Andy Carroll, Iago Aspas, Rickie Lambert og Christian Benteke borið númerið en enginn þeirra náði að sanna sig í búningi Liverpool. Nú verður fróðlegt að sjá hvað Firmino gerir í búningi númer 9.

Athugasemdir