Harpa Þorsteinsdóttir var í dag valin í hópinn sem fer á EM í Hollandi í næsta mánuði.
Harpa eignaðist sitt annað barn, drenginn Ými, í lok febrúar.
Hún sneri aftur á fótboltavöllinn með Stjörnunni í maí og í þessari viku lék hún sinn fyrsta leik í byrjunarliði í sumar.
Harpa eignaðist sitt annað barn, drenginn Ými, í lok febrúar.
Hún sneri aftur á fótboltavöllinn með Stjörnunni í maí og í þessari viku lék hún sinn fyrsta leik í byrjunarliði í sumar.
Harpa er klár í slaginn fyrir EM en sinnir móðurhlutverkinu að sjálfsögðu að fullum krafti á sama tíma.
Hún greindi frá því á Twitter nú rétt í þessu að hún hefði gefið Ými brjóst á sama tíma og hún var í viðtali í dag.
Harpa endaði færsluna síðan á #NOTHINGISIMPOSSIBLE
Harpa hefur verið í lykilhlutverki í íslenska landsliðinu undanfarin ár en hún var markahæst allra leikmanna í undankeppni EM.
Fun fact; var að gefa Ými brjóst meðan ég var í útvarpsviðtali við K100 þar sem umræðuefnið var að ég er að fara á EM #NOTHINGISIMPOSSIBLE 😏
— Harpa Þorsteins (@HarpaThorsteins) June 22, 2017
Sjá einnig:
Freyr: Harpa verður ekki fyrsti kostur
Athugasemdir