„Þetta er búið að vera svolítið erfitt hjá okkur undanfarið þannig að þetta voru vonbrigði. Mér fannst fyrri hálfleikurinn flottur en seinni ekki alveg eins góður,“ sagði Helena Ólafsdóttir, þjálfari ÍA, þegar Fótbolti.net náði tali af henni eftir 3-0 tapleik gegn Þrótti fyrr í kvöld.
Helena var eðlilega vonsvikin með úrslitin og erfiða byrjun á Íslandsmótinu en er fullviss um að Skagakonur nái að snúa við blaðinu.
„Þetta er kannski erfiðari byrjun en margir áttu von á en við vissum svosem alveg að við værum að fara í hörku deild. Við þurfum að reyna að snúa við blaðinu og við gerum það að lokum. Við þurfum bara að halda áfram.“
Aðspurð segist Helena hafa búist við sterkri deild í sumar.
„Ég bjóst við henni sterkri og hef talað um það. Liðin voru að bæta við sig á síðustu metrunum fyrir mót. Það voru að koma inn nýjir erlendir leikmenn inn þannig að ég vissi alveg að hún væri þetta sterk,“ sagði Helena og bætti við að henni þætti jákvætt að sjá framfarirnar í deildinni.
Nánar er rætt við Helenu í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir