Ingiberg Ólafur Jónsson, leikmaður HK í Inkasso-deildinni, var ánægður með 2-0 sigur liðsins á ÍR í Kórnum í dag.
Lestu um leikinn: HK 2 - 0 ÍR
Ásgeir Marteinsson og Bjarni Gunnarsson sáu til þess að HK myndi ná í þrjú stigin í dag.
Varnarleikur liðsins var agaður og miðjan frábær. Ingiberg var einn af bestu mönnum leiksins og var hann ánægður að liðið hélt loksins hreinu.
„Já virkilega og að halda hreinu í fyrsta skiptið í sumar og sérstaklega eftir fjóra tapleiki í röð er þetta gríðarlega mikilvægt og líka ÍR á svipuðum stað og við í deildinni," sagði Ingiberg við Fótbolta.net.
„Við erum mjög fastir fyrir og sérstaklega á heimavelli. Þetta var mjög flottur leikur."
Ingiberg og Guðmundur Þór Júlíusson voru frábærir í miðvarðarparinu en hann segir þá ná afar vel saman.
„Við náum mjög vel saman og frábært að spila með Gumma. Við erum búnir að fara vel yfir varnarleikinn og vonandi náum við að halda hreinum lökum í kjölfarið."
„Sérstaklega varnarlega þá er þetta einn af þeim betri í sumar. Við erum ekki búnir að skora mark úr opnu spili í langan tíma og gott að fá Ásgeir Marteins í gang."
Styrmir Erlendsson fékk að líta rauða spjaldið í liði ÍR á 90. mínútu en Styrmir var tiltölulega nýkominn inn sem varamaður.
„Gummi togar hann eitthvað smá niður og Styrmir er eitthvað pirraður og sparkar í bakið á honum," sagði hann í lokin.
Athugasemdir