fim 22. júní 2017 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kluivert: PSG mun ekki leyfa Verratti að fara til Barcelona
Hvar endar Verratti?
Hvar endar Verratti?
Mynd: Getty Images
Patrick Kluivert, sem hætti á dögunum sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Paris Saint-Germain, telur að Barcelona muni ekki takast að kaupa Marco Verratti frá franska stórliðinu.

Verratti er ósáttur í París samkvæmt fjölmiðlum í Frakklandi og vill fara, en hann á fjögur ár eftir af samningi sínum.

Það hefur verið talað um að Barcelona sé tilbúið að eyða 100 milljónum evra í Verratti, en Kluivert segir að PSG sé ekki tilbúið að samþykkja tilboð í ítalska miðjumanninn.

„Ég veit að Verratti vill fara til Barcelona, en PSG mun ekki leyfa það. Það verður mjög erfitt," sagði Kluivert.

„Verratti mun kosta meira en 100 milljónir evra."
Athugasemdir
banner
banner
banner