Landsliðskonur Íslands sem fara á EM í Hollandi í næsta mánuði verða flottar í tauinu. Verslunin Mathilda hefur nefnilega tekið sig til með að sjá um klæðnað stelpnanna fyrir mótið.
Þær munu klæðast fatnaði frá Polo Ralph Lauren fyrir leiki í keppninni og við sérstök tilefni í kringum keppnina.
Það sama var gert fyrir karlalandsliðið þegar það fór á EM í Frakklandi í síðasta sumar. Þá fengu strákarnir gríðarlega flott jakkaföt frá Herragarðinum.

Lokahópur Íslands fyrir EM verður opinberaður seinna í dag. Fréttamannafundur verður haldinn í Laugardalnum kl. 13:15 og þar verður Fótbolti.net með fréttir beint í æð.
Ísland hefur svo leik á EM þann 18. júlí gegn Frökkum. Ásamt Frökkum er Ísland með Sviss og Austurríki í riðli.
Hér að neðan má sjá mynd af stelpunum í fötunum.
Athugasemdir