Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 22. júní 2017 10:30
Elvar Geir Magnússon
Myndir: Ronaldo gladdi stelpu í hjólastól
Ronaldo smellir kossi á stelpuna.
Ronaldo smellir kossi á stelpuna.
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo gaf ungri stelpu í hjólastól minningu sem alltaf mun lifa þegar hann leiddi hana út á völlinn fyrir leik Portúgals gegn Rússlandi í Álfukeppninni í gær.

Eftir þjóðsöngvana gaf Ronaldo stelpunni upphitunarjakka sinn og gaf henni koss á ennið.

Ánægja stelpunnar leyndi sér ekki.

Ronaldo skoraði svo eina mark leiksins og tryggði þjóð sinni sigur. Þetta var hans 74. landsliðsmark og líklegt að það muni koma liðinu í undanúrslit keppninnar.

Ronaldo er mikið í umræðunni eftir að greint var frá því að hann vilji yfirgefa Real Madrid en eftir leikinn í gær gaf hann ekki kost á spurningum.
Athugasemdir
banner
banner
banner