Oscar, fyrrum miðjumaður Chelsea, hefur verið bannaður í átta leiki eftir að allt sauð upp úr í leik með Shanghai SIPG í kínversku Ofurdeildinni.
Rétt áður en fyrri hálfleiknum lauk tók Oscar reiði sína út á andstæðingnum, en hann sparkaði boltanum viljandi í tvo leikmenn Guangzhou áður en allt fór í bál og brand.
Rétt áður en fyrri hálfleiknum lauk tók Oscar reiði sína út á andstæðingnum, en hann sparkaði boltanum viljandi í tvo leikmenn Guangzhou áður en allt fór í bál og brand.
Leikmenn úr báðum liðum fengu rautt spjald, en Oscar hélt sér á einhvern hátt inni á vellinum.
Tveir leikmenn voru dæmdir í sex og fimm leikja bann.
Shanghai er í öðru sæti deildarinnar þegar 13 af 30 umferðum er lokið.
Seems like Oscar is settling in well in China pic.twitter.com/W9Bj29tLoM
— Footy Humour (@FootyHumour) June 18, 2017
Athugasemdir