Guðbjörg og Dagný í fyrirliðateyminu
Sara Björk Gunnarsdóttir verður fyrirliði íslenska landsliðsins á EM í Hollandi í sumar, þetta tilkynnti Freyr Alexandersson á fréttamannafundi.
Í fjarveru Margrétar Láru Viðarsdóttur þá verður Sara Björk fyrirliði liðsins en Freyr hefur valið svokallað fyrirliðateymi.
Í fjarveru Margrétar Láru Viðarsdóttur þá verður Sara Björk fyrirliði liðsins en Freyr hefur valið svokallað fyrirliðateymi.
Guðbjörg Gunnarsdóttir markvörður verður varafyrirliði og Dagný Brynjarsdóttir þriðji fyririði.
Sara Björk er gríðarlega reynslumikil með landsliðinu en hún á að baki 106 landsleiki að baki.
Smelltu hér til að sjá EM hópinn
Athugasemdir