Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 22. júní 2017 08:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
West Brom vill fá Jay Rodriguez
Jay Rodriguez.
Jay Rodriguez.
Mynd: Getty Images
West Brom hefur hafið viðræður við Southampton um kaup á Jay Rodriguez, en það er Sky Sports sem greinir frá.

Talið er að dýrlingarnir vilji fá 12 milljónir punda fyrir hann.

Hinn 27 ára gamli Rodriguez hefur verið mjög meiðslahrjáður og það hefur valdið því að forráðarmenn Southampton hafa oft og mörgum sinnum rætt um framtíð hans og hvað þeir eigi að gera.

Rodriguez vildi fara í annað lið síðasta sumar eftir að hafa aðeins byrjað þrjá deildarleiki hjá Ronald Koeman.

Southampton vildi ekki selja hann, en ástandið batnaði ekki hjá Claude Puel. Hann byrjaði aðeins níu deildarleiki.

Honum hefur nú verið tjáð það að hann megi fara ef rétta tilboðið berst. Það er spurning hvort það komi frá West Brom.
Athugasemdir
banner
banner
banner