Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   fös 22. júní 2018 09:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Hannes Varði Halldórsson, helsti stuðningsmaður Hannesar Þórs mættur til Volgograd
Icelandair
Hannes Varði í Fanzone í gær.
Hannes Varði í Fanzone í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Daði, fréttamaður Fótbolta.net er staddur í Volgograd þar sem Ísland mætir Nígeríu og hann tók stuðningsmann Íslands á tali á fan-zoneinu í Volgograd þar sem leikur Króatíu og Argentínu var sýndur.

„Ég heit Hannes Varði Halldórsson. Ég hef aldrei verið sáttur með þetta nafn. Mér var mikið strítt og hef einhvernveginn aldrei verið ánægður með þetta. En ég er kominn hingað til Volgograd því það er mín skylda og ég fann minn tilgang í nafninu að styðja Hannes (Þór Halldórsson) af því að hann varði," sagði Hannes en þá skoraði akkúrat Króatíu þegar hann sleppti orðinu.

Hannes Varði er því mættur til Volgograd að styðja sinn mann í marki íslenska liðsins gegn Nígeríu.

„Ég ákvað að koma til Volgograd og vera viðstaddur leikinn á móti Nígeríu því þá veit ég að Hannes mun verja allt. Ég var viðstaddur leikinn á EM þegar hann varði allt saman á móti Ronaldo. Það gerðist sama þegar ég var viðstaddur á Argentínu og ég ætla að fylgja honum alla leið. Ég hef fundið minn tilgang, það er að vera Hannes Varði, með liðinu, alltaf."

Hannes Varði náði loksins sáttum með nafnið sitt á leiknum á móti Argentínu, líklega þegar Hannes varði vítið frá Messi.

„Ég náði sáttum með nafnið."

Hannes Varði ætlar að hitta nafna sinn og fá hann til að árita nafnið.

„Ég ætla mér að gera það á morgun og fá hann allavega til þess að árita nafnið því við erum samtvinnaðir í þessu. Hann hefur náð þessum árangri útaf mér, útaf þessu nafni.
Athugasemdir
banner
banner