Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 22. júní 2018 17:49
Elvar Geir Magnússon
Heimir: Þurfum bara að vinna Króatíu
Icelandair
Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari
Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við þurfum bara að vinna Króatíu. Það er þó auðveldara að segja það en að gera það," sagði Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari á fréttamannafundi eftir tapið gegn Nígeríu í dag.

Ísland mætir Króatíu í Rostov-on-Dona á þriðjudaginn. Eftir tapið í dag er ljóst að Ísland þarf nauðsynlega að vinna.

„Við vitum hvernig leik við eigum í vændum. Króatía hefur sýnt það hversu hrikalega öflugt lið það er. Við höfum oft mætt Króatíu," sagði Heimir.

Hann kom svo með líkingu sem hann hefur komið með áður, að Ísland og Króatía séu eins og gömul hjón sem hafi reynt að skilja en það gengur ekkert.
Athugasemdir
banner