Instagram stjarna íslenska landsliðsins, Rúrik Gíslason er í byrjunarliði íslenska landsliðsins í leiknum gegn Nígeríu sem nú er hálfnaður.
Fyrir leikinn var Rúrik með 770 þúsund fylgjendur á Instagram reikningi sínum en þeim hefur heldur betur fjölgað frá því að leikurinn hófst í Stalíngrad í dag.
Fyrir leikinn var Rúrik með 770 þúsund fylgjendur á Instagram reikningi sínum en þeim hefur heldur betur fjölgað frá því að leikurinn hófst í Stalíngrad í dag.
Þegar flautað var til hálfleiks hafði Rúrik bætt við sig 22.000 fylgjendum og þeim fer fjölgandi.
Umræðan á Twitter um þessa fjölgun hefur verið mikil og fólk hefur verið duglegt við að fylgjast með þróun mála á meðan á leik stendur.
Fylgstu með beinni textalýsingu frá leiknum á Fótbolta.net
Skoðaðu Instagram síðu Rúriks.
Athugasemdir