Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   þri 22. júlí 2014 22:03
Karitas Þórarinsdóttir
Adda: Illa spilaður leikur af okkar hálfu
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir.
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
,,Mér líður mjög vel að vera komin með 7 stiga forystu en mjög illa yfir illa spiluðum leik af okkar hálfu," sagði Ásgerður Stefanía Baldursdóttir miðjumaður Stjörnunnar eftir 1-0 sigur liðsins á Breiðabliki í toppslag umferðarinnar í Pepsi-deild kvenna.

Lestu um leikinn: Stjarnan 1 -  0 Breiðablik

,,Við vorum virkilega slakar í dag. Við héldum ekki boltanum, sköpuðum engin færi og vorum illa skipulagðar í seinni hálfleik sérstaklega," hélt hún áfram.

Stjarnan er komið með sjö stiga forskot á toppi deildarinnar þegar 8 umferðir eru enn eftir. Hvernig metur Adda möguleikana?

,,Við tökum bara næsta leik og erum ekkert að hugsa neitt lengra en það. Vonandi söfnum við bara stigum og höldum okkur á toppnum."

Viðtalið má sjá í sjónvarpinu að ofan.
Athugasemdir
banner
banner