Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 22. júlí 2014 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Boxari hótaði óvart að lemja leikmann kvennaliðs Liverpool
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breski hnefaleikakappinn Tyson Fury var heldur vandræðalegur á samskiptavef Twitter í gær en hann hótaði þá að lemja Lucy Bronze, leikmann í kvennaliði Liverpool á Englandi.

Tyson er ansi öflugur boxari en hann hefur unnið alla 22 bardaga sína og þar af 16 þeirra með rothöggi.

Hann átti að mæta Derek Chisora næst í hringnum en hann meiddist fyrir bardagann og ákvað Fury því að skora á Deontay Wilder.

Hann kallaði alla þá sem hann ætlaði sér að mæta gungur en skoraði óvart á Lucy Bronze, leikmann í kvennaliði Liverpool á hólm og hótaði að berja hana í spað.

Hann fór þó mannavillt og ætlaði ekki að skora á hana en hann baðst þó ekki afsökunar á tísti sínu og sendi á endanum á réttan mann.


Athugasemdir
banner
banner
banner