Makedóníumaðurinn Goran Jovanovski hefur gengið til liðs við BÍ/Bolungarvík.
Goran er 34 ára gamall en hann getur leikið bæði í vörninni og á miðjunni.
Hann lék með Keflvíkingum í Pepsi-deildinni árið 2011 og þá á hann að baki fjölmarga leiki í efstu deild í heimalandi sínu.
Í fyrra skipti Goran yfir í KV um mitt sumar en kom ekkert við sögu með liðinu.
Goran getur spilað sinn fyrsta leik með BÍ/Bolungarvík gegn Leikni R. á laugardag.
Athugasemdir