Landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson er þessa stundina að gangast undir læknisskoðun hjá Swansea.
Þetta segja heimildir Sky Sports, en að lokinni læknisskoun mun Gylfi Þór ganga frá vistarskiptum sínum frá Tottenham.
Sky segir enn fremur að Swansea muni greiða 10 milljónir punda fyrir miðjumanninn.
Félögin standa í miklum viðskiptum þessa stundina, þar sem Tottenham er að fá þá Michel Vorm og Ben Davies frá Swansea. Félögin eru þó ekki að skiptast á leikmönnum og verður gengið frá hverjum samningi fyrir sig.
Athugasemdir