banner
   þri 22. júlí 2014 20:34
Brynjar Ingi Erluson
Meistaradeildin: Celtic með stórsigur á KR
Virgil van Dijk skoraði tvö mörk fyrir Celtic í kvöld
Virgil van Dijk skoraði tvö mörk fyrir Celtic í kvöld
Mynd: Ingólfur Hannes Leósson
Glasgow Celtic 4 - 0 KR (Samanlagt, 5-0)
1-0 Virgil van Dijk ('13 )
2-0 Virgil van Dijk ('20 )
3-0 Teemu Pukki ('27 )
4-0 Teemu Pukki ('71 )

Glasgow Celtic reyndist of stór biti fyrir KR-inga er liðin mættust á Murrayfield í Edinborg í kvöld en leiknum lauk með 4-0 sigri Celtic.

Það var hollenski leikmaðurinn Virgil van Dijk sem kom Celtic yfir strax á 13. mínútu en hann stangaði þá boltann í netið eftir hornspyrnu.

Van Dijk skoraði annað mark sjö mínútum síðar en aftur var það eftir hornspyrnu og aftur var það skalli. Örugg staða sem Celtic var komið í og einvígið svo gott sem búið.

Teemu Pukki bætti við þriðja markinu á 27. mínútu svo áður en hann bætti við fjórða markinu tuttugu mínútum fyrir leikslok.

Lokatölur á Murrayfield í kvöld, 4-0 Celtic í vil og því samanlagt 5-0 og er KR því úr leik í undankeppni Meistaradeild Evrópu.
Athugasemdir
banner
banner
banner