Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 22. júlí 2014 10:00
Magnús Már Einarsson
Michel Vorm nær samkomulagi við Tottenham
Michel Vorm.
Michel Vorm.
Mynd: Getty Images
Michel Vorm, markvörður Swansea, hefur náð samkomulagi við Tottenham og mun ganga í raðir félagsins í vikunni ef ekkert óvænt kemur upp á.

Vorm og Ben Davies eru báðir á leið til Tottenham frá Swansea á meðan Gylfi Þór Sigurðsson mun fara í hina áttina.

Framtíð Vorm hefur verið í óvissu hjá Swansea síðan Lukasz Fabianski kom til félagsins frá Arsenal fyrr í sumar.

Hjá Tottenham mun hinn þrítugi Vorm berjast við Hugo Lloris um markvarðarstöðuna.
Athugasemdir
banner
banner