James Rodriguez, leikmaður Real Madrid á Spáni, var kynntur fyrir stuðningsmönnum félagsins á Santiago Bernabeu í dag.
Rodriguez kostaði félagið 80 milljónir evra en hann kom frá AS Monaco í Frakklandi þar sem hann átti magnað tímabil.
Hann var þá markahæsti leikmaður HM í Brasilíu en ljóst er að erfitt verður að sigra þetta stjörnuprýdda lið Madrídinga.
Hægt er að sjá myndir af James hér fyrir neðan er hann mætti á Bernabeu.
Athugasemdir