,,Þetta var sætur sigur og góð byrjun á seinni umferðinni. Við erum mjög sátt við þessi þrjú stig," sagði Ólafur Þór Guðbjörnsson þjálfari Stjörnunnar eftir 1-0 sigur á Breiðabliki í 10. umferð Pepsi-deildar kvenna í kvöld.
Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 0 Breiðablik
,,Við lögðum upp með að spila eins og við höfum gert og reyna að loka þeim svæðum sem þær hafa verið að sækja sig í. Þær eru með góða sóknarmenn og fljóta og við breyttum ekkert kerfinu eða neinu," hélt hann áfram en hann fór í fimm manna vörn síðasta kaflann af leiknum.
,,Það var bara til að loka leiknum og klára hann. Við þurftum ekkert nema þetta eina mark og þurftum þessi þrjú stig og erum sátt með það."
,,Nú erum við glöð í tvo daga og svo er bikarleikur á föstudaginn á móti þeim aftur. Það verður bara gaman."
Athugasemdir