Steven Caulker er genginn í raðir QPR og skrifaði hann undir fjögurra ára samning hjá nýliðunum í ensku úrvalsdeildinni.
Caulker kemur frá Cardiff fyrir 8 milljónir punda, en hann lék alla 38 leiki Cardiff á síðustu leiktíð þegar liðið féll úr deildinni.
Caulker kemur frá Cardiff fyrir 8 milljónir punda, en hann lék alla 38 leiki Cardiff á síðustu leiktíð þegar liðið féll úr deildinni.
Þessi 22 ára gamli miðvörður kemur til með að standa við hlið reynsluboltans Rio Ferdinand í hjarta varnarinnar hjá QPR í vetur.
Caulker kom upp í gegnum unglingastarf Tottenham. Cardiff keypti hann þaðan fyrir sömu upphæð og hann var seldur á í dag.
Athugasemdir