Markvörðurinn Sveinn Sigurður Jóhannesson framlengdi í dag samning sinn við Stjörnuna.
Sveinn á að baki tvo landsleiki með U-19 ára landsliði Íslands og er einn af efnilegri markmönnum landsins.
,,Það er okkur afar ánægjulegt að tilkynna að Sveinn Sigurður hefur skrifað undir nýjan samning við félagið, til þriggja ára," segir í fréttatilkynningu frá Stjörnunni.
,,Knattspyrnudeildin er gríðarlega ánægð með að Sveinn hafi skrifað undir nýjan samning og muni vera hjá okkur næstu árin. Það mun koma til með að vera mikill liðsstyrkur fyrir okkur," sagði Victor Ingi Olsen rekstrarstjóri knattspyrnudeildar.
Athugasemdir