Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 22. júlí 2014 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Valencia lætur Ricardo Costa fara frá félaginu
Mynd: Getty Images
Spænska félagið Valencia heldur áfram að losa sig við leikmenn fyrir komandi tímabil en portúgalski leikmaðurinn Ricardo Costa hefur verið leystur undan samningi, ellefu mánuðum áður en hann átti að renna út.

Costa, sem er 33 ára gamall, gekk til liðs við Valencia frá Wolfsburg árið 2010 en hann spilaði einungis 20 leiki á síðustu leiktíð.

Samningur hans hjá Valencia átti að renna út næsta sumar en ákveðið var að leysa hann undan honum fyrr en áætlað var.

Valencia er búið að missa nokkra leikmenn að undanförnu en Juan Bernat fór til Bayern München á dögunum og þá er Jeremy Mathieu á leið til Barcelona.
Athugasemdir
banner
banner
banner