Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 22. júlí 2015 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: BBC 
Alex Morgan verður fyrsta konan á hulstri FIFA
Svona mun leikurinn líta út í Bandaríkjunum
Svona mun leikurinn líta út í Bandaríkjunum
Mynd: EA Sports
Bandaríska landsliðskonana, Alex Morgan, mun fyrst kvenna prýða hulstur tölvuleiksins FIFA 16, en þó aðeins í Bandarísku útgáfunni.

Morgan verður á hulstrinu ásamt argentíska snillingnum Lionel Messi.

"Það er mikill heiður fyrir mig að vera fyrsta konan í sögunni til að vera á hulstri FIFA," sagði þessi launahæsta knattspyrnukona í heimi.

"Ég veit að fólk spil­ar leik­inn í miklum mæli um heim all­an og ég er mjög ánægð með að FIFA skuli loksins beina kast­ljós­inu að kvennaknatt­spyrnu."

Á hulstri kanadísku út­gáfu leiks­ins verður Christ­ine Sincla­ir, fyr­irliði kanadíska kvenna­landsliðsins, ásamt Messi en hann verður á hulstr­um allra FIFA 16 leikja sem gefn­ir verða út.

Þetta verður í fyrsta sinn í sögu FIFA sem hægt verður að spila með kvennalandslið.
Athugasemdir
banner
banner