Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 22. júlí 2015 10:51
Magnús Már Einarsson
Benteke gengur í raðir Liverpool í dag
Á leið á Anfield.
Á leið á Anfield.
Mynd: Getty Images
Christian Benteke, framherji Aston Villa, mun ganga í raðir Liverpool í dag samkvæmt frétt Sky Sports.

Einungis á eftir að ganga frá smávægilegum pappírsmálum áður en Benteke skrifar undir.

Benteke er með 32,5 milljónir punda riftunarverð í samningi sínum hjá Aston Villa og Liverpool nýtti sér það í síðustu viku.

Hinn 24 ára gamli Benteke er búinn í læknisskoðun og ætti að skrifa undir síðar í dag.

Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, hefur verið duglegur á leikmannamarkaðinum í sumar en nú þegar eru James Milner, Adam Bogdan, Danny Ings, Nathaniel Clyne, Roberto Firmino og Joe Gomez komnir til félagsins.
Athugasemdir
banner