Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 22. júlí 2015 09:26
Magnús Már Einarsson
Jóhann Berg framlengir við Charlton (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhann Berg Guðmundsson hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við Charlton Athletic.

Jóhann kom til Charlton frá AZ Alkmaar í fyrrasumar en hann skrifaði þá undir tveggja ára samning.

Félög í ensku úrvalsdeildinni hafa sýnt Jóhanni áhuga enda átti hann einungis ár eftir af samningi.

Þessi 24 ára gamli leikmaður hefur nú gert nýjan samning við Charlton en hann er í miklum metum hjá stuðningsmönnum liðsins eftir að hafa spilað vel og skorað ellefu mörk á síðasta tímabili.

„Þetta er mjög gott. Við höfum rætt um þetta í nokkra mánuði. Núna er þetta klárt og ég get einbeitt mér að fótboltanum og hjálpað liðinu að byrja vel í Championship deildinni," sagði Jóhann við heimasíðu Charlton.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner