Keflavík hefur fengið norska framherjann Martin Hummervoll á láni frá Viking í Noregi en 433.is greinir frá þessu í dag.
Martin kemur til landsins á morgun og mun leika með Keflavík út tímablið.
Martin er 19 ára gamall en hann á nokkra leiki að baki með aðalliði Viking.
Keflavík fékk fyrr í mánuðinum framherjann Chukwudi Chijindu sem og miðjumanninn Farid Zato.
Keflavík er í neðsta sæti í Pepsi-deildinni með fimm stig en næsti leikur liðsins er gegn FH næstkomandi þriðjudag.
Athugasemdir