Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, segir að framtíð Mario Balotelli hjá félaginu sé í höndum leikmannsins.
Balotelli skoraði einungis fjögur mörk í öllum keppnum á síðasta tímabili og óvissa er um framtíð hans.
Balotelli skoraði einungis fjögur mörk í öllum keppnum á síðasta tímabili og óvissa er um framtíð hans.
Rodgers var spurður að því í morgun hvar framtíð Balotelli liggi.
„Ég er ekki viss. Það veltur algjörlega á Mario," sagði Rodgers.
„Hann er að leggja hart að sér til að komast í form og við þurfum að sjá hvað gerist þegar nýtt tímabil byrjar."
Athugasemdir