Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 22. júlí 2015 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Football 365 
Suarez vonar að Pedro verði áfram hjá Barcelona
Luis Suarez
Luis Suarez
Mynd: EPA
Luis Suarez, framherji Barcelona, vonar að liðsfélagi sinn Pedro, ákveði að hafna tilboðum frá öðrum liðum og verði áfram í Katalóníu.

Pedro hefur undanfarið verið orðaður við lið í Englandi eins og Chelsea, Manchester United og Liverpool, en Suarez vonar að Pedro verði áfram hjá Barcelona.

"Framtíð Pedro hjá Barcelona er í hans höndum," sagði Suarez.

"Hann hefur verið í mörg ár hjá félaginu og unnið marga titla í leiðinni. Við munum virða ákvörðun hans."

"En sem liðsfélagi hans, þá vil ég að hann verði áfram því hann er mikilvægur fyrir okkar félag."
Athugasemdir
banner
banner
banner