Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 22. júlí 2015 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Daily Mail 
Van Gaal: Darmian hugsaður sem varamaður fyrir Valencia
Matteo Darmian
Matteo Darmian
Mynd: Getty Images
Louis Van Gaal, stjóri Manchester United, segir að Matteo Darmian sé hugsaður sem varamaður fyrir Antonio Valencia í byrjun tímabilsins.

Talið var líklegt að Darmian, sem gekk til liðs við United frá Torino á dögunum, myndi hoppa strax inn í byrjunarliðið en Van Gaal segir það ekki rétt.

"Við fengum Darmian hingað til að auka breiddina í hægri bakvarðarstöðunni," sagði Van Gaal.

"Valencia verður áfram fyrsti kostur okkar í bakvarðastöðuna. Í fyrra lentum við í miklum vandræðum með jafnvægið í liðinu en nú erum við með tvo góða leikmenn í hverri stöðu.

Það er þó langt tímabil framundan og ljóst er að Darmian mun fá tækifæri til að vinna sér inn sæti í byrjunarliðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner