Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   fös 22. júlí 2016 21:26
Jóhann Ingi Hafþórsson
Samsung-vellinum
Anna Björk: Vorum óheppnar að jafna ekki í lokin
Anna Björk í leik með Stjörnunni.
Anna Björk í leik með Stjörnunni.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Anna Björk Kristjánsdóttir var svekkt eftir 3-2 tap gegn Breiðablik í undanúrslitum Borgunarbikars kvenna í kvöld.

Breiðablik var 3-0 yfir þegar að um korter var eftir en Stjarnan náði að skora tvö mörk í lokin og gera smá spennu. Nær komust þær þó ekki og eru því úr leik.

Anna segir slæman fyrri hálfleik hafa kostað liðið en hún er ánægð með karakterinn sem þær sýndu með að gera leik úr þessu í lokin.

Lestu um leikinn: Stjarnan 2 -  3 Breiðablik

„Við mættum ekki til leiks í fyrri hálfleik og fengum á okkur tvö slæm mörk þá. Við ætlum að gera betur í seinni hálfleik en fáum þá í staðin þriðja markið í andlitið."

„Það var erfitt að koma til baka eftir það en það er karakter í liðinu og við náum að koma til baka eftir það. Við vorum óheppnar að ná ekki að setja eitt í lokin og jafna."

Anna er á láni hjá Stjörnunni en frí er í sænsku deildinni þar sem hún spilar með Örebro. Hún ákvað að nota fríið í að koma til Íslands að spila með Stjörnunni og sér hún ekki eftir því.

„Það er gott að koma aftur í Stjörnuna, það er gott að spila með þeim. Maður þekkir þetta lið og fer í svolítið comfort zone," sagði Anna að lokum.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner