Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   fös 22. júlí 2016 16:53
Gabríel Sighvatsson
Avni Pepa: Vil vinna titla með þessu félagi
Avni Pepa skrifaði undir þriggja ára samning við ÍBV.
Avni Pepa skrifaði undir þriggja ára samning við ÍBV.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er mjög ánægður með að hafa skrifað undir þriggja ára samning við þetta félag, mér líkar vel við mig hér og langar að vinna titla með félaginu," sagði Avni Pepa fyrirliði ÍBV en hann skrifaði undir nýjan samning við félagið í dag sem heldur honum hjá Eyjaliðinu næstu þrjú árin.

„Þetta er lítil eyja en ég er hérna til að spila fótbolta. Liðið byrjaði tímabilið vel en við höfum ekki verið að ná í jafnmörg stig í undanförnum leikjum og verðum að reyna að komast á beinu brautina aftur,"

Markmiðið er skýrt, við tökum einn leik í einu og reynum að vinna sem flesta, við viljum enda í topp 6 í deildinni og fara alla leið í bikarnum,"
sagði Avni aðspurður út í gengi liðsins og markmið þeirra á þessu tímabili.

Avni er ekki aðeins lykilmaður hjá félagsliði sínu heldur er hann einnig fastamaður í landsliði Kosovo sem var nýlega dregið í riðil með Íslandi fyrir undankeppni HM 2018.

„Þetta er erfiður riðill en þetta verður góð reynsla fyrir mig og liðið. Ísland hefur staðið sig mjög vel en þú veist aldrei hvað gerist í fótbolta." sagði Avni Pepa að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner