Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
banner
   fös 22. júlí 2016 21:33
Jóhann Ingi Hafþórsson
Samsung-vellinum
Hallbera: Laugardalsvöllurinn bíður okkar
Hallbera skoraði í kvöld og átti góðan leik.
Hallbera skoraði í kvöld og átti góðan leik.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
„Við vorum komnar í 3-0 og maður er stundum kærulaus þegar staðan er orðin nokkuð örugg og við hleyptum þeim alltof mikið inn í þetta," sagði Hallbera Guðný Gísladóttir, leikmaður Breiðabliks eftir 3-2 sigur á Stjörnunni í undanúrslitum Borgunarbikarsins.

Eins og Hallbera sagði, komst Breiðablik í 3-0 áður en Stjarnan minnkaði muninn í 3-2 og það urðu lokatölur. Hallbera var virkilega ánægð með spilamennsku Blika í kvöld.

Lestu um leikinn: Stjarnan 2 -  3 Breiðablik

„Mér fannst við spila ótrúlega vel í dag, Berglind er að koma sterk inn og við náðum að láta boltann ganga mikið betur en undanfarið á móti Stjörnunni. Mér fannst við yfirspila þær í fyrri hálfleik."

Liðin mættust á dögunum í deildinni og hafði Breiðablik þá 1-0 sigur í fremur daufum leik. Leikurinn í kvöld var töluvert skemmtilegri og tók Hallbera undir það.

„Leikurinn í deildinni var hundleiðinlegur miðað við þennan leik en þetta var mjög sætt og Laugardalsvöllurinn bíður okkar."

Hún kom Blikum í 2-0 undir lok fyrri hálfleiks með marki beint úr aukaspyrnu. Spyrnan var utan af kanti og fór í gegnum allan pakkann inni á teig og í fjærhornið. Hún sagði það bæði hafa verið skot og fyrigjöf.

„Maður verður að setja hann í þetta svæði, annað hvort nær einhver að pota í hann eða hann siglir inn þannig að bæði og," sagði Hallbera.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner