Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 22. júlí 2016 22:42
Jóhann Ingi Hafþórsson
Martin Svensson í Víking Ó. (Staðfest)
Martin Svensson í nýju treyjunni.
Martin Svensson í nýju treyjunni.
Mynd: Heimasíða Víkings Ó.
Daninn, Martin Svensson er kominn til Víkings Ó en þetta staðfesta þeir á heimasíðu sinni.

Svensson var hjá Víkingi R. en hann passaði ekki inn í spil liðsins og lét Milos Milojevic hann því fara.

Alls spilaði hann fimm leiki fyrir Reykjavíkurliðið en Milos hrósaði honum mikið fyrir gæði sín, þrátt fyrir að hafa ekki haft not fyrir hann.

Ólafsvíkingar hafa hingað til verið að missa leikmenn í glugganum og eru þetta því kærkomnar fréttir fyrir Ólsara.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner