,,Dagný er með skófar í bringunni
„Þetta var alls ekki lélegur leikur, en þetta var ekki okkar besta heldur," sagði Guðbjörg Gunnarsdóttir, landsliðsmarkvörður, í viðtali eftir 2-1 tap gegn Sviss á Evrópumótinu í Hollandi í dag.
„Við töluðum um eftir Frakkaleikinn að gera 5% betur og það myndi skila okkur sigri, en við náum því miður ekki að komast upp í það í dag," sagði Guðbjörg.
„Við töluðum um eftir Frakkaleikinn að gera 5% betur og það myndi skila okkur sigri, en við náum því miður ekki að komast upp í það í dag," sagði Guðbjörg.
Lestu um leikinn: Ísland 1 - 2 Sviss
„Við erum undir í návígum, sem er ekki líkt okkur. Síðan leið mér líka þannig að við máttum varla hnerra og þá var komin aukaspyrna. Sif var varla búin að taka innkast og þá var búið að flauta."
„Það er ekki hægt að segja að það sé mikið með okkur núna."
Guðbjörg var ekki sátt með framgöngu Svisslendinga og eins og aðrir Íslendingar þá var ekki sátt með dómara leiksins.
„Fyrir leikinn voru þær farnar að væla, þær sögðu í fjölmiðlum að þær þyrftu að spila jafngróft og við. Þær voru strax í dómaranum fyrir leik, þær voru strax í dómaranum í hálfleik. Manni leið pínu ´Dagný hnerraði! Já, aukaspyrna.´ Mér finnst stórfurðulegt að Dickenmann hafi ekki fengið rautt. Dagný er með skófar í bringunni eftir hana," sagði Guðbjörg pirruð.
„Ég hef spilað marga leiki þar sem dómarar hafa verið miklu betri, sagði Guðbjörg undir lokin.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum að ofan.
Stolt af því að eiga bestu stuðningsmenn Evrópu🇮🇸 Litlu hlutirnir féllu því miður ekki með okkur í kvöld. #dottir #fyririsland #WEURO17 pic.twitter.com/i8XXtzSfLQ
— Guðbjörg Gunnarsd. (@GuggaGunnars) July 22, 2017
Fótbolti.net er með öflugt teymi í Hollandi og er hægt að fylgjast með öllu bak við tjöldin á Snapchat (Fotboltinet), á Instagram og öðrum samskiptamiðlum okkar.
Leikir Íslands á EM:
Ísland 0-1 Frakkland
Ísland 1-2 Sviss
Ísland 0-3 Austurríki
Athugasemdir