Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 22. ágúst 2014 11:50
Elvar Geir Magnússon
Ásgeir Sigurvins: Áhuginn aldrei verið meiri
Ásgeir Sigurvinsson.
Ásgeir Sigurvinsson.
Mynd: Sigmundur Ó. Steinarsson
„Það er gaman að boltinn sé að byrja að rúlla í Þýskalandi og maður reynir að sjá þessa leiki sem eru sýndir. Ég tek þessa leiki fram yfir þá ensku,“ segir Ásgeir Sigurvinsson, að margra mati besti fótboltamaður sem Ísland hefur átt.

Þýska deildin fer af stað í kvöld þegar Bayern München mætir Wolfsburg en SkjárSport sýnir leikinn beint og í opinni dagskrá,

Ásgeir lék með Bayern München og svo Stuttgart á sínum tíma. Hann varð þýskur meistari árið 1984 og kjörinn besti leikmaður deildarinnar það ár. Hann mun fylgjast spenntur með þegar Robert Lewandowski, Thomas Müller, Marco Reus og fleiri leikmenn þýsku deildarinnar láta ljós sitt skína í vetur.

„Það er svakaleg stemning í Þýskalandi núna og liðin hafa verið að styrkja sig vel. Ég held samt að þetta endi í baráttu milli tveggja liða, Bayern München og Dortmund. Ég hef það á tilfinningunni að Bæjarar fari ekki eins létt í gegnum þetta núna eins og þeir gerðu í fyrra. Þeir eru samt óneitanlega gríðarlega sterkir og það verður erfitt að taka þá úr hásætinu.“

Ásgeir sér fram á að Dortmund verði eina liðið sem geti strítt Bayern en þegar þessi lið mættust í þýska Ofurbikarnum á dögunum unnu þeir gulu sigur.

„Það vantaði sterka leikmenn í Bayern í þeim leik og landsliðsmennirnir voru ekki klárir. Það var þó gaman að sjá unga leikmenn fá tækifæri enda fullt af efnilegum leikmönnum sem spennandi verður að sjá,“ segir Ásgeir.

„Þýska deildin er sú mest sótta í heiminum. Vellirnir þarna eru orðnir mjög flottir og aðstæður hjá öllum liðum frábærar. Það er mikil upplifun að fara á völlinn þarna. Nú þegar Þýskaland er heimsmeistari er áhuginn enn meiri og það verður pottþétt uppselt á flesta leiki. Áhugi þjóðarinnar er gríðarlegur.“

Ásgeir var staddur í Þýskalandi þegar hluti heimsmeistaramótsins í Brasilíu fór fram og segir að fótboltaáhuginn í landinu hafi aldrei verið meiri.

„Ég horfði á leiki með fyrrum landsliðsmönnum Þýskalands og stemningin í landinu nær til allra. Enski boltinn er fast mótaður hjá Íslendingum og það verður ekki breyting á því en menn ættu klárlega að fylgjast með þýska boltanum í auknari mæli þegar færi gefst,“ segir Ásgeir Sigurvinsson.
Athugasemdir
banner
banner
banner