Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 22. ágúst 2014 16:56
Grímur Már Þórólfsson
Emery: Fazio hefur spilað sinn seinasta leik fyrir Sevilla
Federico Fazio
Federico Fazio
Mynd: Getty Images
Þjálfari Sevilla Unai Emery hefur viðurkennt að Federico Fazio sé að yfirgefa félagið. Bendir það sterklega til þess að hann sé að ganga til liðs við Tottenham.

Hinn 27 ára gamli argentíski varnarmaður var nýlega gerður að fyrirliða Sevilla en Emery var spurður hvort hann myndi spila fyrir félagið um helgina.

„Fazio er okkar leikmaður en hann hefur nánast enga mögulega á að spila fyrir okkur á morgun. Staðreyndin er sú að hann er líklegast búinn að spila sinn seinasta leik fyrir Sevilla."

„Það er ljóst að ég vill að hann verði áfram en á morgun þarf ég að velja einhvern annan í hans stað. Ég óska honum bara góðs gengis." Sagði Emery á blaðamannafundi í dag.

Hann mun því líklegast ganga til liðs við Tottenham en kaupverðið er talið vera um 8 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner