Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fös 22. ágúst 2014 11:59
Hafliði Breiðfjörð
Meistaradeild: Stjarnan til Rússlands - Liverpool hingað?
Stjarnan fer til Rússlands.
Stjarnan fer til Rússlands.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kvennalið Stjörnunnar drógst gegn Zvezda-2005 frá Rússlandi í 32 liða úrslitum Meistaradeildar kvenna en dregið var í morgun.

Stór félög eins og Frankfurt, Barcelona og Liverpool áttu lið í hattinum að þessu sinni en leikur Stjörnunnar og Zveda var síðasta viðureignin í hattinum.

Þá var einnig dregið í 16 liða úrslitin og ljóst að ef Stjörnunni tekst að leggja rússneska liðið af hólmi þá mæta þær sigurvegaranum í viðureign Liverpool og Linköping.

Leikirnir í 32 liða úrslitum fara fram dagana 8./9. október fyrri leikurinn og 15./16. október síðari leikurinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner