Jose Mourinho viðurkenndi á fréttamannafundi í dag að markvörðurinn Petr Cech sé óánægður hjá Chelsea. Mourinho var spurður út í málið á fundi sem haldinn var í aðdraganda leiks Chelsea gegn Leicester.
„Cech er sannur atvinnumaður og vinnur sína vinnu og er hluti af hópnum. Hann er óánægður eins og aðrir leikmenn sem eru ekki í liðinu. Framkoma og hegðun Petr hefur verið til fyrirmyndar eins og alltaf og það er mikilvægt," sagði Mourinho.
Cech er talinn meðal bestu markvarða heims en þarf að sætta sig við bekkjarsetu þar sem Thibaut Courtois er á undan honum í röðinni.
Athugasemdir