Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 22. ágúst 2014 16:00
Elvar Geir Magnússon
Pogba að verða einn sá launahæsti á Ítalíu
Paul Pogba.
Paul Pogba.
Mynd: Getty Images
Paul Pogba mun bráðlega skrifa undir nýjan samning við Juventus til fimm ára. Frá þessu greina ítalskir fjölmiðlar.

Umræða um framtíð franska miðjumannsins hefur verið hávær í sumar.

Þessi 21 árs leikmaður hefur slegið í gegn á Ítalíu eftir að hafa komið frá Manchester United. Real Madrid er meðal félaga sem hefur áhuga á honum.

Pogba mun fá umtalsverða launahækkun og verður einn launahæsti leikmaður Ítalíu ef hann skrifar undir.
Athugasemdir
banner
banner