fös 22. ágúst 2014 23:30
Grímur Már Þórólfsson
Rodgers: Balotelli mun ekki eyðileggja móralinn
Mynd: Getty Images
Mario Balotelli er mættur í læknisskoðun hjá Liverpool en 16 milljóna félagsskipti hans til Liverpool eru við það að vera staðfest.

Það er hins vegar talið að Liverpool vilji setja samningsákvæði í samning kappans á þann að veg að Liverpool eigi rétt á skaðabótum ef hann hegðar sér ekki.

Rodgers var ekki tilbúinn að ræða félagsskiptin en ýjaði þó að því að þeir væru ekki að festa kaup á kappanum nema að þeir væru fullvissir um að hann myndi ekki eyðileggja móralinn í liðinu.

„Ég get ekki rætt þessi mál fyrr en að leikmaðurinn er búinn að skrifa undir. Andrúmsloftið hérna er frábært. Síðustu tvö ár höfum við lagt mikið upp úr því að byggja það upp.

„Það er er ekkert sem getur eyðilagt það. Ég mun alltaf vernda það. Ég lít ekki bara á þá sem leikmenn heldur sem persónur líka. "

Þá sagði hann einnig að Markovic væru kominn aftur eftir meiðsli og gæti spilað gegn Manchester City á mánudaginn og það gæti Alberto Moreno líka. Adam Lallana væri hins vegar ennþá meiddur en stutt væri í endurkomu."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner