Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 22. ágúst 2016 17:30
Magnús Már Einarsson
Alexis Sanchez býr til Instagram síðu fyrir hundana sína
Alexis með Atom og Humber.
Alexis með Atom og Humber.
Mynd: Instagram
Sumir vilja meina að hunduruinn sé besti vinur mannsins og Alexis Sanchez leikmaður Arsenal er svo sannarlega á þeirri skoðun.

Alexis á tvo hunda sem heita Atom og Humber en þeir eru í miklu uppáhaldi hjá honum.

Alexis hefur til að mynda merkt takkaskóna sína með nöfnum hundanna.

Í gær ákvað Alexis síðan að búa til sérstaka síðu á Instagram fyrir myndir og myndbönd af hundunum sínum.

Á einum sólarhring hafa hundarnir Atom og Humber fengið tæplega 14 þúsund fylgjendur á Instagram. Geri aðrir hundar betur!

Smelltu hér til að sjá Instagram síðu Atom og Humber
Athugasemdir
banner
banner
banner